iPhone 4 aflæsing!

Laugardagur, 16. apríl 2011 18:25

Margir hafa beðið spenntir eftir nýrri aflæsingu fyrir iPhone 4. Lausn er komin, en hún er heldur frábrugðin fyrri aflæsingum.

Hún virkar þannig að IMEI númer símans er sett í gagnagrunn Apple yfir ólæsta síma, þ.a.l. verður síminn ólæstur þegar hann er "activate"-aður aftur.

Þ.a.l. virkar þetta á öllum stýrikerfum!

Nokkrar vefsíður eru að bjóða upp á þessa þjónustu, til að nefna einhverjar og verð:

 

Margir hafa spurt mig hvort þessir aðilar hafi leyfi til þess að selja innsetningu í gagnagrunninn hjá Apple, og hvort Apple muni ekki bara henda út IMEI númerinu út. Það er alltaf möguleiki, þessi þjónusta er það ný að það er erfitt að segja til um það, en til þess að forðast að þú missir aflæsinguna mæli ég með því að síminn sé jailbreak-aður, SAM sett inn og tekið afrit af "Activation"-inu. Upplýsingar um það hvernig þú tekur afritið er að finna hér.
iFix getur að sjálfsögðu tekið þetta allt að sér, áhugasamir sendið pöntun eða fyrirspurn.

 

 

iFix opnar sölutorg!

Laugardagur, 15. janúar 2011 03:56

Margt hefur gerst hjá iFix síðustu daga, en í þetta sinn hefur iFix opnað sölutorg! Á sölutorginu er bæði hægt að kaupa og selja allar vörur sem tengjast Apple. Endilega kíkið á sölutorgið og setjið inn Apple dót sem þið viljið losna við. Sölutorgið finnið þið uppi í valmyndinni eða hér.

(þessir nýttu sér sölutorgið!)

 

iFix opnar fréttavef!

Fimmtudagur, 13. janúar 2011 23:34

iFix hefur opnað fréttavef! Á honum verða ýmsar fréttir sem tengjast Apple á einn eða annan hátt. Við ætlum að halda honum vel uppfærðum með nýjustu fréttirnar úr Apple heiminum. Til liðs við okkur höfum við fengið Ásgeir Helga Þrastarson og Jovan Rey Calderon Apple-fræðinga sem munu hjálpa okkur við að viðhalda fréttavefnum. Endilega kíkið á fréttavefinn okkar.

Ný vefsíða opnar!

Mánudagur, 10. janúar 2011 02:30

iFix hefur síðustu vikur unnið að því að uppfæra vefinn okkar. Ástæðan fyrir nýrri vefsíðu er til þess að geta nýtt kerfið Joomla, sem býður uppá ótrúlega marga möguleika!

Með nýja kerfinu getum við auðveldlega sett inn nýjar fréttir með flottum myndum og fleira.

Vonandi takið þið vel í nýju síðuna, okkur finnst hún mjög flott og þægileg.

Okkur þætti vænt um ef þið mynduð láta okkur vita ef það er eitthvað sem ykkur finnst vanta eða eitthvað sem betur má fara með því að senda okkur tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Kærar þakkir

 

 
© iFix.is - Auðarstræti 17, 105 Reykjavík - 666-2200 - ifix@ifix.is