Macbook Air SSD uppfærsla!

Other World Computing (OWC, MacSales) kynntu í gær SSD uppfærslur fyrir nýjustu Macbook Air tölvurnar. PhotoFast reyndu þetta fyrir stuttu en Apple kröfðust þess að þeir hættu sölu á uppfærslunum. Það verður gaman að sjá hvort þessar uppfærslur séu komnar til að vera, en við vonumst svo sannarlega að verðin munu lækka fljótlega, þar sem þau eru ansi há.

SSD drifin eru með SandForce stýringunni sem er ein sú allra besta.

Verðin eru eftirfarandi:

 

  • 180GB - $499.99
  • 240GB - $579.99
  • 360GB - $1.179.99!
Uppfærslurnar eru svo sannarlega ekki ókeypis! iFix getur að sjálfsögðu skipt gamla út fyrir nýjan.

 

© iFix.is - Auðarstræti 17, 105 Reykjavík - 666-2200 - ifix@ifix.is