Frí þjófavörn fyrir tölvuna þína!
Skrifað af: Sigurður Stefán Flygenring Fimmtudagur, 12. maí 2011 23:51

Ég rakst á mjög flottan frían hugbúnað sem nefnist Prey, sem ég verð bara að deila með ykkur eftir að hafa prófað með góðum árangri.
Prey er svokallaður „anti-theft“ hugbúnaður sem gerir þér kleift að merkja tölvuna stolna, og þá færð þú tölvupóst reglulega með skýslu sem inniheldur upplýsingar eftir þínu vali.
Helstu upplýsingafítusarnir eru:
- Geo - finnur út staðsetningu útfrá nettenginunni sem tölvan er á.
- Network - finnur ytri og innri IP töluna ásamt því að finna MAC addressuna á tölvunni, og nöfnin á tengdum og nálægum þráðlaustum nettengingum.
- Screenshot - tekur skjáskot af tölvunni.
- Webcam - tekur mynd úr vefmyndavélinni.
Einnig getur þú framkvæmt aðgerðir á tölvunni.
Helstu aðgerðarfítusarnir eru:
- Alarm - spilar hávært hljóð úr tölvunni, hentugt ef þú hefur týnt tölvunni í grendinni.
- Alert - birtir skilaboð í tölvunni þar sem þú getur látið hann vita að fylgst sé með tölvunni, og þú getur einnig skipt um skjámynd!
- Lock - læsir tölvunni, slá verður inn lykilorð sem þú velur til þess að aflæsa henni.
- Secure - felur tölvupóstana þína, og eyðir vafrakökum og vistuðum lykilorðum.
Prey virkar á Mac, Windows, Linux og völdum símum.
Endilega skoðið vefsíðuna hjá Prey Project með því að smella hér.
Dim lights Embed Embed this video on your site
