Næsti iPad - iPad 2?
Skrifað af: Sigurður Stefán Flygenring Sunnudagur, 16. janúar 2011 00:10
Nýr iPad er væntanlegur eins og margir vita. Hér fyrir neðan ætla ég að reyna að svara helstu spurningum varðandi næstu gerð af iPad. Vinsamlegast athugið að þessi svör eru einungis byggð á orðrómum sem þurfa alls ekki að vera réttir.
Hvenær mun hann koma út?
Fyrsta kynslóðin (núverandi kynslóð) af iPad var kynntur 27. janúar 2010, en var gefinn út 3. apríl 2010. Apple virðist uppfæra vörurnar sínar í sömu mánuðum (t.d. september atburðurinn hjá Apple fjallar oft um nýja iPodda, og nýr iPhone hefur verið kynntur í á hverju ári í júní alveg frá 2007), svo við megum búast við að nýr iPad verði kynntur snemma á árinu 2011.
Hvaða fítusa mun hann hafa fram yfir núverandi kynslóð?
- Betri skjá - iPhone 4 fékk betri skjá miðað við fyrri gerðir, og líklegt er að Apple muni uppfæra skjáinn í næstu gerð af iPad. Einnig fundust vísbendingar í nýjasta þróunarstýrikerfisútgáfu af iOS 4.3 sem benda til þess að skjárinn á næstu gerð af iPad verði með tvöfalda upplausn miðað við núverandi skjá, eða 2048x1536px.
- Betra skjákort - Einnig er búist við að Apple uppfæri skjákortið í iPadinum til þess að þola nýju upplausnina.
- FaceTime myndavél(ar?) - Apple setti FaceTime myndavél bæði í iPhone 4 og iPod Touch 4. kynslóð ásamt því að gefa út FaceTime hugbúnað fyrir Mac, svo það er ansi líklegt að Apple muni setja FaceTime myndavél framan á nýja iPaddinn. Á mögulega leknum myndum af iPad hulstrum fyrir næstu gerð af iPad má sjá holu fyrir myndavél aftan á iPadinum, kemur myndavél líka aftan á honum?
- Meira vinnsluminni - Með komu multi-tasking hefur 256mb ekki verið nærrum því nóg af vinnsluminni fyrir iPaddinn. iPhone 4 hefur 512mb af vinnsluminni svo það er ekki spurning, Apple mun uppfæra vinnsluminnið.
- Betri hátalarar? SD kortalesari? - Á myndunum af mögulega leknum hulstrum fyrir næstu gerð af iPad má sjá gat sem er á sama stað og hátlararnir á núverandi kynslóð af iPad. Talið er líklegt að þetta sé annahvort fyrir betri hátalara, SD kortalesara eða bæði.
- Nýjir stýrikerfis fítusar - Apple hefur oft látið einhverja nýja stýrikerfisfítusa fylgja með nýjum útgáfum af vörum hjá sér. Það er bara spurning um hvaða fítusa Apple mun gefa út fyrir næstu kynslóð af iPad.

(mynd af mögulega hulstrum fyrir næstu kynslóð af iPad)
