iPad 3 og Apple TV 3 - samantekt

Skrifað af: Sigurður Stefán Flygenring Föstudagur, 02. mars 2012 10:32

Boðsmiðinn

(Boðskort Apple til fjölmiðla)

Apple hefur sent út boðsmiða á fjölmiðlakynningu sem verður 7. mars 2012 kl. 18:00 á íslenskum staðartíma.

Apple mun kynna þar til leiks næstu gerð af iPad, iPad 3.

iFix hefur tekið saman helstu fítusta sem líklegt er að verði í iPad 3.

  • Skjár - Retina skjár með 2048x1536 í upplausn!
  • Örgjörvi - Kraftmeiri örgjörvi, mögulega quad-core. Mun heita annað hvort A5X eða A6.
  • Myndavél - Myndavélarnar á iPad 2 eru langt frá því að vera góðar, líklegt er að Apple uppfæri þær með sambærilegum og eru í iPhone 4S.
  • Siri - Hingað til hefur iPhone 4S verið eina græjan sem fengið hefur Siri.
  • Rafhlaða - Líklegt er að Apple uppfæri rafhlöðuna til þess að ná betri rafhlöðuendingu.
  • Enginn home takki - Þrátt fyrir að myndir sem lekið hafa af framhlið iPad 3 þar sem home takkinn er enn til staðar, þá er það þó mögulegt að Apple losi sig loksins við home takkann og myndi þá notast við multi-touch tæknina í stað hans. Okkur finnst það ólíklegt.
Samkvæmt myndum af varahlutum í iPad 3 sem lekið hafa á netið verður hann nánast eins og iPad 2 útlitslega séð, en bakhliðin mældist 0.8mm þykkari.
Mögulegt er að um sé að ræða frumgerð af bakhliðinni og því sé hún þykkri, en við teljum það ólíklegt.
iPad 2 og 3 bakhliðar mældar.
(Samanburður á þykktinni á iPad 2 og iPad 3 bakhliðum)
Mynd af framhlið iPad 3 - líklega...

(Framhlið á iPad 3)

Einnig þykir líklegt að Apple muni koma með uppfærslu á Apple TV og kynni Apple TV 3, þar sem helsti nýi eiginleikinn er að geta höndlað full HD 1080p efni, ekki bara 720p eins og forveri sinn. Lítið er vitað um það, því miður.

Kynningin byrjar eftir:

Við mælum með að fylgjast með á Facebook síðunni okkar þegar nær dregur að atburðinum, þar munum við setja inn tengla á live updates.

 

Frí þjófavörn fyrir tölvuna þína!

Skrifað af: Sigurður Stefán Flygenring Fimmtudagur, 12. maí 2011 23:51

Ég rakst á mjög flottan frían hugbúnað sem nefnist Prey, sem ég verð bara að deila með ykkur eftir að hafa prófað með góðum árangri.

Prey er svokallaður „anti-theft“ hugbúnaður sem gerir þér kleift að merkja tölvuna stolna, og þá færð þú tölvupóst reglulega með skýslu sem inniheldur upplýsingar eftir þínu vali.

Helstu upplýsingafítusarnir eru:

  • Geo - finnur út staðsetningu útfrá nettenginunni sem tölvan er á.
  • Network - finnur ytri og innri IP töluna ásamt því að finna MAC addressuna á tölvunni, og nöfnin á tengdum og nálægum þráðlaustum nettengingum.
  • Screenshot - tekur skjáskot af tölvunni.
  • Webcam - tekur mynd úr vefmyndavélinni.

 

Einnig getur þú framkvæmt aðgerðir á tölvunni.

Helstu aðgerðarfítusarnir eru:

  • Alarm - spilar hávært hljóð úr tölvunni, hentugt ef þú hefur týnt tölvunni í grendinni.
  • Alert - birtir skilaboð í tölvunni þar sem þú getur látið hann vita að fylgst sé með tölvunni, og þú getur einnig skipt um skjámynd!
  • Lock - læsir tölvunni, slá verður inn lykilorð sem þú velur til þess að aflæsa henni.
  • Secure - felur tölvupóstana þína, og eyðir vafrakökum og vistuðum lykilorðum.

 

Prey virkar á Mac, Windows, Linux og völdum símum.

Endilega skoðið vefsíðuna hjá Prey Project með því að smella hér.

Dim lights Embed Embed this video on your site

 

iPhone 4 aflæsing!

Skrifað af: Sigurður Stefán Flygenring Laugardagur, 16. apríl 2011 18:25

Margir hafa beðið spenntir eftir nýrri aflæsingu fyrir iPhone 4. Lausn er komin, en hún er heldur frábrugðin fyrri aflæsingum.

Hún virkar þannig að IMEI númer símans er sett í gagnagrunn Apple yfir ólæsta síma, þ.a.l. verður síminn ólæstur þegar hann er "activate"-aður aftur.

Þ.a.l. virkar þetta á öllum stýrikerfum!

Nokkrar vefsíður eru að bjóða upp á þessa þjónustu, til að nefna einhverjar og verð:

 

Margir hafa spurt mig hvort þessir aðilar hafi leyfi til þess að selja innsetningu í gagnagrunninn hjá Apple, og hvort Apple muni ekki bara henda út IMEI númerinu út. Það er alltaf möguleiki, þessi þjónusta er það ný að það er erfitt að segja til um það, en til þess að forðast að þú missir aflæsinguna mæli ég með því að síminn sé jailbreak-aður, SAM sett inn og tekið afrit af "Activation"-inu. Upplýsingar um það hvernig þú tekur afritið er að finna hér.
iFix getur að sjálfsögðu tekið þetta allt að sér, áhugasamir sendið pöntun eða fyrirspurn.
Uppfærsla 1. mars 2012: CutYourSim þjónustan er aftur orðin virk!

 

 

iPad 2 kynntur 2. mars?

Skrifað af: Sigurður Stefán Flygenring Miðvikudagur, 23. febrúar 2011 20:11

Apple hefur gefið út boðskort á fjölmiðlafund sem haldinn verður 2. mars, kl. 18 á GMT. Mjög líklegt er að þeir kynni nýjan iPad!

Steve Jobs mun því miður að öllum líkindum ekki stíga á svið, þar sem hann er enn í veikindaleyfi en talið er líklegt að Tom Cook muni kynna.

Við skellum inn "feed" á Facebook síðuna okkar þegar að kynningunni kemur, endilega fylgist með.

Endilega skoðið greinina okkar um iPad 2 hér, þar sem fjallað er um mögulegar breytingar á næstu gerð af iPad.

 

 

iPad officially kominn til landsins!

Skrifað af: Sigurður Stefán Flygenring Fimmtudagur, 27. janúar 2011 23:38

Loksins loksins! iPaddinn er lentur í dreifingu frá Apple, á Íslandi, sem er ekkert nema frábærar fréttir!

Ísland virðist loksins vera komið á kortið hjá Apple Inc. Þetta er alveg hreint frábær byrjun fyrir okkur Íslendinga hvað varðar iOS græjurnar!
Mjög líklega mun Epli.is sinna árs alþjóðlegu ábyrgðinni á iPad, ásamt því að sjálfsögðu að bjóða uppá lögbundna tveggja ára ábyrgð (eins árs fyrir fyrirtæki).

Macland (ásamt fleiri endursöluaðilum Epli) mun að sjálfsögðu bjóða uppá iPad!

Verðin á iPad má finna hér.

 

Síða 1 af 2

«FyrstaFyrri12NæstaSíðasta»
© iFix.is - Auðarstræti 17, 105 Reykjavík - 666-2200 - ifix@ifix.is