Frí þjófavörn fyrir tölvuna þína!
Skrifað af: Sigurður Stefán Flygenring Fimmtudagur, 12. maí 2011 23:51

Ég rakst á mjög flottan frían hugbúnað sem nefnist Prey, sem ég verð bara að deila með ykkur eftir að hafa prófað með góðum árangri.
Prey er svokallaður „anti-theft“ hugbúnaður sem gerir þér kleift að merkja tölvuna stolna, og þá færð þú tölvupóst reglulega með skýslu sem inniheldur upplýsingar eftir þínu vali.
Helstu upplýsingafítusarnir eru:
- Geo - finnur út staðsetningu útfrá nettenginunni sem tölvan er á.
- Network - finnur ytri og innri IP töluna ásamt því að finna MAC addressuna á tölvunni, og nöfnin á tengdum og nálægum þráðlaustum nettengingum.
- Screenshot - tekur skjáskot af tölvunni.
- Webcam - tekur mynd úr vefmyndavélinni.
Einnig getur þú framkvæmt aðgerðir á tölvunni.
Helstu aðgerðarfítusarnir eru:
- Alarm - spilar hávært hljóð úr tölvunni, hentugt ef þú hefur týnt tölvunni í grendinni.
- Alert - birtir skilaboð í tölvunni þar sem þú getur látið hann vita að fylgst sé með tölvunni, og þú getur einnig skipt um skjámynd!
- Lock - læsir tölvunni, slá verður inn lykilorð sem þú velur til þess að aflæsa henni.
- Secure - felur tölvupóstana þína, og eyðir vafrakökum og vistuðum lykilorðum.
Prey virkar á Mac, Windows, Linux og völdum símum.
Endilega skoðið vefsíðuna hjá Prey Project með því að smella hér.
Dim lights Embed Embed this video on your site
iPhone 4 aflæsing!
Skrifað af: Sigurður Stefán Flygenring Laugardagur, 16. apríl 2011 18:25
Margir hafa beðið spenntir eftir nýrri aflæsingu fyrir iPhone 4. Lausn er komin, en hún er heldur frábrugðin fyrri aflæsingum.
Hún virkar þannig að IMEI númer símans er sett í gagnagrunn Apple yfir ólæsta síma, þ.a.l. verður síminn ólæstur þegar hann er "activate"-aður aftur.
Þ.a.l. virkar þetta á öllum stýrikerfum!
Nokkrar vefsíður eru að bjóða upp á þessa þjónustu, til að nefna einhverjar og verð:
- Superpaddy.nl - $150.00
- CutYourSim - $169.99 (þjónusta ekki virk lengur vegna of mikillar eftirsóknar)
- NigriElectronics - $189.50

iPad 2 kynntur 2. mars?
Skrifað af: Sigurður Stefán Flygenring Miðvikudagur, 23. febrúar 2011 20:11
Apple hefur gefið út boðskort á fjölmiðlafund sem haldinn verður 2. mars, kl. 18 á GMT. Mjög líklegt er að þeir kynni nýjan iPad!
Steve Jobs mun því miður að öllum líkindum ekki stíga á svið, þar sem hann er enn í veikindaleyfi en talið er líklegt að Tom Cook muni kynna.
Við skellum inn "feed" á Facebook síðuna okkar þegar að kynningunni kemur, endilega fylgist með.
Endilega skoðið greinina okkar um iPad 2 hér, þar sem fjallað er um mögulegar breytingar á næstu gerð af iPad.

iPad officially kominn til landsins!
Skrifað af: Sigurður Stefán Flygenring Fimmtudagur, 27. janúar 2011 23:38
Loksins loksins! iPaddinn er lentur í dreifingu frá Apple, á Íslandi, sem er ekkert nema frábærar fréttir!
Ísland virðist loksins vera komið á kortið hjá Apple Inc. Þetta er alveg hreint frábær byrjun fyrir okkur Íslendinga hvað varðar iOS græjurnar!
Mjög líklega mun Epli.is sinna árs alþjóðlegu ábyrgðinni á iPad, ásamt því að sjálfsögðu að bjóða uppá lögbundna tveggja ára ábyrgð (eins árs fyrir fyrirtæki).
Macland (ásamt fleiri endursöluaðilum Epli) mun að sjálfsögðu bjóða uppá iPad!
Verðin á iPad má finna hér.

Næsti iPad - iPad 2?
Skrifað af: Sigurður Stefán Flygenring Sunnudagur, 16. janúar 2011 00:10
Nýr iPad er væntanlegur eins og margir vita. Hér fyrir neðan ætla ég að reyna að svara helstu spurningum varðandi næstu gerð af iPad. Vinsamlegast athugið að þessi svör eru einungis byggð á orðrómum sem þurfa alls ekki að vera réttir.
Hvenær mun hann koma út?
Fyrsta kynslóðin (núverandi kynslóð) af iPad var kynntur 27. janúar 2010, en var gefinn út 3. apríl 2010. Apple virðist uppfæra vörurnar sínar í sömu mánuðum (t.d. september atburðurinn hjá Apple fjallar oft um nýja iPodda, og nýr iPhone hefur verið kynntur í á hverju ári í júní alveg frá 2007), svo við megum búast við að nýr iPad verði kynntur snemma á árinu 2011.
Hvaða fítusa mun hann hafa fram yfir núverandi kynslóð?
- Betri skjá - iPhone 4 fékk betri skjá miðað við fyrri gerðir, og líklegt er að Apple muni uppfæra skjáinn í næstu gerð af iPad. Einnig fundust vísbendingar í nýjasta þróunarstýrikerfisútgáfu af iOS 4.3 sem benda til þess að skjárinn á næstu gerð af iPad verði með tvöfalda upplausn miðað við núverandi skjá, eða 2048x1536px.
- Betra skjákort - Einnig er búist við að Apple uppfæri skjákortið í iPadinum til þess að þola nýju upplausnina.
- FaceTime myndavél(ar?) - Apple setti FaceTime myndavél bæði í iPhone 4 og iPod Touch 4. kynslóð ásamt því að gefa út FaceTime hugbúnað fyrir Mac, svo það er ansi líklegt að Apple muni setja FaceTime myndavél framan á nýja iPaddinn. Á mögulega leknum myndum af iPad hulstrum fyrir næstu gerð af iPad má sjá holu fyrir myndavél aftan á iPadinum, kemur myndavél líka aftan á honum?
- Meira vinnsluminni - Með komu multi-tasking hefur 256mb ekki verið nærrum því nóg af vinnsluminni fyrir iPaddinn. iPhone 4 hefur 512mb af vinnsluminni svo það er ekki spurning, Apple mun uppfæra vinnsluminnið.
- Betri hátalarar? SD kortalesari? - Á myndunum af mögulega leknum hulstrum fyrir næstu gerð af iPad má sjá gat sem er á sama stað og hátlararnir á núverandi kynslóð af iPad. Talið er líklegt að þetta sé annahvort fyrir betri hátalara, SD kortalesara eða bæði.
- Nýjir stýrikerfis fítusar - Apple hefur oft látið einhverja nýja stýrikerfisfítusa fylgja með nýjum útgáfum af vörum hjá sér. Það er bara spurning um hvaða fítusa Apple mun gefa út fyrir næstu kynslóð af iPad.

(mynd af mögulega hulstrum fyrir næstu kynslóð af iPad)
Fleiri greinar...
Síða 1 af 2
«FyrstaFyrri12NæstaSíðasta»